Fimm mínútur, fengi ég þær,
fyrr en þú kvaddir hér,
sagt þér sönn orð, vinur kær,
hve sárt ég unni þér.

Aldrei fengu orð frá mér
að eiga leið til þín,
hve mikils virði varstu mér
og verður, ástin mín.

Síðast þegar ég sat hjá þér
og sagði ég allt of fátt,
hefði ég vitað hve stutt var hér
þá vildi ég ei kveðja brátt.

Fimm mínútur, faðmlag heitt,
fast ég héldi þér,
sagt þér: Söknuð linar ei neitt
sem sækir mig nú hér.

Nú er þín ferð um ljóssins lönd,
laus við hverja þraut,
og sál þín frjáls, nú slitin bönd,
á sólarbjartri braut.

Bíddu mín þar við bjarta strönd,
ég bið þess eins í nótt:
er kallið kemur, bjóð mér hönd
og komdu mér heim svo hljótt.