Vetrarnóttin varð svo löng,
vindur kvað á glugga.
Hjartað fann þinn hinsta söng
hljóðna bak við skugga.
Vorið kom og varð ég sex,
vantaði þig, afi.
Sorg í ungri sálu vex,
sárt sem alda í hafi.
Tvö og fjörutíu ár,
tregi djúpt í barmi.
Minning þín og mínar þrár
mætast ljúft í harmi.
Enn þinn litli augasteinn
er ég, langa daga.
Mjúkur faðmur, hugur hreinn —
hjartans ljúfa saga.
Birtan þín, svo björt og skær,
blessar mína vegi.
Enn ég finn þig, afi, nær,
eins um nótt sem degi.
Afi minn, um alla tíð
ert í hjarta geymdur.
Sértu nú í sólarhlíð,
sæll og aldrei gleymdur.
