Jesús, ljós í jarðlífs myrkri,
jafnan skín þín náðarsól.
Hirðir, undir hendi styrkri
hjörð þín finnur öruggt skjól.
Kross þinn, Jesús, kærleik glæðir,
krýndur þyrnum fyrir mig.
Blóð þitt hreinsar, bætir, græðir,
blessað lamb, ég tilbið þig.
Upp þú reist, og auð er gröfin,
englar syngja gleðimál.
Lífið vann, og lausnargjöfin
lifir nú í minni sál.
Helgi andi, hjartans ylur,
hlýjar, sefar, þerrar tár.
Verndar mig, er veðrið bylur,
vinur minn um öll mín ár.
Eldur þinn, sem engan brennir,
eflir kjark í hræddri drótt.
Andi sannleiks, allt þú kennir,
elskar mig um dag og nótt.
Kom þú, Jesús, kom þú, andi,
kveikið eld, sem logar skær.
Haldið mér í helgu bandi,
hjartað syngur: Guð er nær.
Lof sé föður, lof sé syni,
lofið hljómi ár og síð,
lof sé anda, ljúfum vini:
ljós og friður alla tíð.
