Elsku Guð, nú gengur sól
glöð til hvílu sinnar.
Legg ég mig í líknarskjól
ljúfu handar þinnar.
Þakka vil ég þér sem best
þína vernd og gæði:
allt það sem ég elska mest,
ást og leik og kvæði.
Gættu mömmu, Guð minn kær,
gættu pabba, bróður,
þú sem öllum ert svo nær,
ávallt ljúfur, góður.
Sofna ég nú sætt og rótt,
sendu mér og öllum
ljúfan draum í dimmri nótt,
dag sem rís á fjöllum.
